Hliðvörðurinn
Heimdallur
Heimdallur tekur við erindum sem berast, flokkar þau og ber þau undir Óskar. Í fyrstu útgáfu skrifar hann aðeins línur í daglegt yfirlit og sendir ekkert sjálfur. Hann er enn í smíðum.
Lítið samfélag gervigreindarvéla, byggt heima.
Melalda er persónulegt verkefni þar sem Óskar Þór og vélarnar byggja saman samfélag sem hjálpar til í daglegu lífi fjölskyldunnar. Hver íbúi hefur eitt hlutverk og skýrar reglur að fara eftir. Hér segjum við frá hugmyndunum á bak við það og því sem við höfum lært á leiðinni.
Melalda er samfélag gervigreindarvéla sem við byggjum saman, heima. Hver vél er kölluð íbúi. Hver íbúi hefur eitt hlutverk og sitt eigið skírteini.
Þetta er ekki vinnutengt verkefni. Samfélagið er til þess að létta undir í daglegu lífi Óskars og fjölskyldunnar.
Við byrjuðum á haustmánuðum 2026. Í nóvember tók heimavélin til starfa, sú sem er alltaf í gangi, og síðan þá hefur samfélagið átt fastan samastað.
Húsið hét áður Melgerði og heitir nú Alda. Nafnið Melalda tengir þau tvö saman, gamla nafnið og það nýja.
Hliðvörðurinn
Heimdallur tekur við erindum sem berast, flokkar þau og ber þau undir Óskar. Í fyrstu útgáfu skrifar hann aðeins línur í daglegt yfirlit og sendir ekkert sjálfur. Hann er enn í smíðum.
Hugur Óskars
Huginn er persónulegt vinnu- og hugsanakerfi Óskars. Hann fangar hugmyndir, heldur utan um boltana og finnur næsta skref. Hann skrifar drög að svörum sem Óskar samþykkir, en tekur aldrei ákvarðanir fyrir hann.
Sendiboðinn
Muninn lætur Óskar vita í símanum þegar verki lýkur.
Vaktmaðurinn
Innviðaeftirlitið fylgist með vefjum, skírteinum, lénum, pósti, afritum og lyklum og lætur vita þegar eitthvað bilar. Það les og tilkynnir, en breytir engu.
Smiðurinn
Kóða-agentinn vinnur forritunarverkin. Hann vinnur í einnota umhverfi sem hverfur eftir hvert verk og skilar breytingunum til yfirferðar. Hann fær aldrei aðgang að kerfum í rekstri.
Sá sem ræður
Óskar getur ræst vinnulotu úr símanum á ferðinni og haldið áfram við tölvuna síðar. Hann les, samþykkir og tekur stóru ákvarðanirnar.
Nöfnin sækjum við í norræna goðafræði, og stundum í Marvel-heiminn þar sem goðafræðin kemur við sögu. Huginn og Muninn eru hrafnar Óðins, hugur og minni.
Reglan er einföld: vélar og staðir heita eftir stöðum eða verkfærum, en íbúar eftir verum. Þannig getur íbúi flutt á milli véla án þess að nöfnin rekist á. Verkstæði samfélagsins heima heitir Smiðja.
Samfélagið hvílir á nokkrum einföldum reglum. Þessar skipta mestu:
Og tvær sem gott er að muna: Ekkert telst uppsett fyrr en það er vaktað og afritað. Og samfélagið á að loka boltum, ekki opna þá.
Íbúi færist upp um stig með reynslu, aldrei fyrir fram.
Hvert nýtt verk fer sömu leið, frá hugmynd til rekstrar.
Ein lína.
Spurningunum svarað. Mikilvægasta hliðið.
Yfirlesarar án samhengis rýna hana áður en nokkuð er smíðað.
Ein lota í einu, í höndum Kóða-agentsins.
Einhver annar en sá sem smíðaði fer yfir.
Virkar þetta í raun?
Óskar sameinar. Smiðurinn fær aldrei lyklana.
Vaktað.
Áætlanir eru rýndar af yfirlesurum sem vita ekkert um verkið fyrir fram. Við köllum þá gullfiska. Þeir hafa oftar en einu sinni fundið alvarlegar villur sem höfundurinn sá ekki, einmitt af því að þeir vissu ekki hvað átti að standa þar.
Ný sjálfvirk aðgerð byrjar alltaf á því að Óskar samþykkir hana í símanum. Þegar sama aðgerð hefur verið samþykkt, segjum tíu sinnum, án vandræða má gera hana sjálfvirka. Sjálfstæði kemur með reynslu, ekki fyrir fram.
Við veltum fyrir okkur verði sem framkvæmir aðgerðir fyrir íbúana í stað þess að þeir fái sjálfir lykla. Hugmyndin er góð, en við lögðum hana til hliðar þar til raunveruleg þörf kemur. Reglurnar eiga að byggja á því sem gerist í raun, ekki á ágiskun.
Samfélagið spyr alltaf um nafn áður en eitthvað er búið til. Og sama nafnið á að gilda alls staðar. Það hljómar smátt, en sparar mikinn rugling síðar.
Bréf getur reynt að gefa gervigreind fyrirmæli. Þess vegna les Huginn bréf sem hreinsaðan texta, hefur engin tól til að bregðast við þeim, og ekkert fer út án þess að Óskar samþykki það í símanum.
Hugmyndin kviknaði hjá Sumarhúsum, sams konar samfélagi sem Magnús Smári byggir. Ef þú hefur gaman af Melöldu skaltu endilega kíkja þangað: sumarhus.com
Ertu sjálf eða sjálfur að byggja eitthvað svipað? Okkur þætti gaman að heyra frá þér.
Skrifaðu á heimdallur@melalda.is.
Heimdallur tekur við erindinu og Óskar les það.